Námið
Í Garðaskóla eru um 430 nemendur á aldrinum 13 - 16 ára. Skólastarf hefst kl. 8.10 alla virka daga og lýkur yfirleitt um kl. 15.20 – 16.00. Skólaárinu er skipt í tvær annir; haustönn frá ágúst til desember og vorönn frá janúar til júní. Hvorri önn lýkur með námsmati og viðtölum við nemendur og forráðamenn.
Nemendur í 8. bekk eru í bekkjakerfi. Í haust komu nemendur í Garðaskóla úr þremur skólum bæjarins, Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla. Það eru sjö deildir í árganginum. Bekkirnir eru blandaðir, en eru með svipaðan nemendafjölda.
Í 9. og 10. bekk í Garðaskóla er hópakerfi sem byggist upp á áþekkan máta og áfangakerfi fjölbrautaskóla. Nemendur raðast í tilteknar námsgreinar eftir frammistöðu/námsgetu og hver nemandi fær eigin stundaskrá. Í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði er skipt upp í mismunandi námshraða. Farið er í sömu námsþætti en námsgögn geta verið mismunandi eftir ferðum og í hraðferðum er farið yfir talsvert meira námsefni en í hægferðum.
Fagkennarar raða nemendum í ferðir í hverri grein. Miðað er við einkunnir á haustannarprófi og röðunin síðan endurskoðuð að vori. Innan hverrar greinar eru sett ákveðin viðmið fyrir röðuninni.
Hraðferðir miðast við nemendur sem hafa náð mjög góðum tökum á námsefninu. Hóparnir eru fjölmennir og gerð krafa um sjálfstæð vinnubrögð.
Miðferðir miðast við nemendur sem hafa nokkuð góð tök á námsefninu. Hóparnir eru miðlungsstórir.
Hægferðir miðast við nemendur sem hafa ekki náð góðum tökum á námsefninu. Farið er hægar yfir og meiri stýring á vinnu nemenda. Hóparnir eru fámennir.
Flugferðir miðast við duglega og afkastamikla nemendur sem geta farið hraðar yfir námsefni og sótt svo nám í svonefndum fjölbrautaáföngum í 10. bekk. Í flugferðum er farið yfir námsefni 9. og 10. bekkjar í 9. bekk. Nemendum er heimilt að þreyta samræmd próf ári fyrr ef þeir óska.
Fjölbrautaáfangar samsvara fyrstu áföngum í framhaldsskóla. Þá er hægt að stunda í ensku, bókfærslu, íslensku, náttúrufræði, stærðfræði og spænsku. Nemendur sem ljúka þessum áföngum geta fengið nám sitt metið til eininga við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og jafnvel fleiri skóla. Nemandinn þarf þá að uppfylla skilyrði um lágmarkseinkunn til að fá námið metið í FG. Nemendur geta þurft að kaupa hluta af námsefni í fjölbrautaáföngum. Sá möguleiki er einnig fyrir hendi að nemendur stundi fjarnám við framhaldsskóla hafi þeir lokið grunnskólaprófi.
Í 9. og 10. bekk er nemendum gefinn kostur á að velja námsgreinar og námssvið. Tilgangurinn með auknu valfrelsi nemenda er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra, kennara og námsráðgjafa (Aðalnámskrá grunnskóla frá 1999).
Framboð valgreina er mismunandi á ári hverju. Nemendur velja þær greinar sem þeir hafa mestan áhuga á og síðan aðrar greinar til vara. Því miður er ekki hægt að verða við óskum allra en takmarkaður fjöldi kemst í hvern hóp. Mjög mikilvægt er að val nemenda sé vel ígrundað því erfitt er að gera breytingar eftir að búið er að útbúa stundatöflu fyrir hvern og einn.
Nemendur og foreldrar eru hvattir til þess að lesa vel þennan bækling og kynna sér upplýsingar um námsbrautir og inntökuskilyrði í framhaldsskóla (sjá tengil á heimasíðu Garðaskóla). Námsráðgjafi veitir ráðgjöf um námsval og einnig geta kennarar og stjórnendur aðstoðað nemendur og foreldra.