Skólasafn
Skólasafn Garðaskóla er á efri hæð skólahússins í suðurenda. Safnið er mjög rúmgott og eru í því sæti fyrir u.þ.b. 50 manns. Safnið er opið daglega frá kl. 8.00 – 15.30.
Markmið safnsins eru m.a.:
-
að safnkostur sé aðgengilegur nemendum og starfsfólki skólans og hafi fræðslu- og uppeldislegt gildi
-
að veita nemendum fræðslu og þjálfun í notkun safna, öflun upplýsinga og úrvinnslu þeirra að örva áhuga nemenda á notkun safnefnis til fróðleiks og skemmtunar
-
að leiðbeina nemendum og starfsfólki skólans við upplýsingaleit í tölvuvæddum skrám, af margmiðlunardiskum og tölvunetum.
Safnkostur
Bókakostur safnsins er um 13.600 bindi, þar af eru um 3800 skáldsögur. Safnið kaupir reglulega fjölmörg tímarit. Annað safnefni er m.a. hljóðbækur, myndbönd, margmiðlunardiskar og kennsluspil. Allur safnkostur er tölvuskráður í Gegni sem er landskerfi bókasafna.
Á safninu eru átta nettengdar margmiðlunartölvur ásamt tveimur prenturum. Nemendur hafa aðgang að tölvunum að fengnu leyfi safnkennara. Þar geta þeir unnið ýmis verkefni, prentað út og aflað sér upplýsinga af ýmsu tagi. Auk þess eru tvær tölvur til skráningar útlána og leitar í gagnagrunni Gegnis.
Útlán
Allir nemendur og starfsmenn skólans geta fengið bækur safnsins að láni. Flestar bækur safnsins eru lánaðar heim en orðabækur og önnur uppsláttarrit sérstaklega merkt eru eingöngu til afnota í skólanum. Tímarit eru ekki lánuð heim og margmiðlunardiska má aðeins nota í tölvum safnsins. Öll útlán skal skrá á safninu. Safnvörður útbýr skírteini fyrir nemendur og starfsmenn sem hann geymir á safninu. Útlánstími bóka er þrjár vikur og hver nemandi má hafa þrjár bækur að láni í einu.