Veturinn 2009-2009 sitja eftirfarandi í nemendaráði Garðaskóla:

  • Eydís Lilja Eysteinsdóttir          10. SG           Formaður
  • María Rist Jónsdóttir                10. SSH        Varaformaður
  • Haraldur Axel Haraldsson         10. BB          Meðstjórnandi
  • Davíð Halldórsson                      9. IW          Meðstjórnandi
  • Kristjana Björk Brynjarsdóttir     9. GE          Ritari
  • Brynhildur Karlsdóttir                  9. GE          Meðstjórnandi
  • Jóhann Ívar Björnsson                 9. HÓ         Meðstjórnandi


Lýsingar á embættum í nemendaráði (samþykkt á fundi ráðsins þriðjudaginn 16. október 2007):

  • Formenn: stjórna starfi rýnihópsins og eru ábyrgir fyrir því að skipuleggja dagskrá fyrir hvern fund
  • Ritarar: halda skrá um öll verk rýnihópsins og ganga frá öllum skriflegum bréfum og yfirlýsingum sem rýnihópurinn vill senda frá sér 
  • Talsmenn: Þurfa að geta talað hátt og skýrt fyrir framan hóp af fólki. Verða að vera traustvekjandi. Eru talsmenn rýnihópsins og verða að taka hlutverk sitt hátíðlega (mega t.d. ekki vera með neina stæla)


Nemendaráð Garðaskóla starfar skv. 17. grein grunnskólalaga:

Við hvern grunnskóla skal starfa nemendaráð og er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun þess. Í nemendaráði situr a.m.k. einn fulltrúi úr hverjum árgangi í 6.-10. bekk sem nemendur úr þessum bekkjardeildum velja sjálfir. Nemendaráð vinnur m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda og skal skólastjóri sjá til þess að ráðið fái aðstoð eftir þörfum. Nemendaráð skal fá skólanámskrá til umsagnar og aðrar áætlanir er varða skólahaldið. Nemendaráð skal jafnframt fá til umsagnar fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Nemendaráð hvers skóla skal setja sér starfsreglur.

Í nemendaráði sitja þeir fulltrúar nemenda sem hafa áhuga á sinna hagsmunagæslu og velferðarmálum nemenda í Garðaskóla. Nemendaráð, í samstarfi við stjórnendur og annað starfsfólk skólans, vinnur að því að gera góðan skóla enn betri. Nemendaráðið ber ábyrgð á því að sjónarmið nemenda í Garðaskóla berist stjórnendum skólans. Þetta er ábyrgðarhlutverk en líka mjög gefandi því á þessum vettvangi fá nemendur tækifæri til að koma hlutum í verk.

Dæmi um verkefni sem nemendaráð hefur unnið eru:

  • samstarf við foreldraráð, t.d. um úrbætur í mötuneytismálum
  • koma hugmyndum á framfæri til arkitekta sem hanna breytingar á skólahúsnæðinu
  • koma hugmyndum á framfæri til garðyrkjustjóra um úrbætur á skólalóðinni (fleiri bekki, betri gönguleiðir, snyrtilegra umhverfi)
  • koma ábendingum um neikvæð samskipti í skólanum á framfæri við stjórnendur.
  • settur upp hugmyndakassi þar sem allir nemendur hafa tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri.


Nemendaráð fundar einu sinni í viku og er sá tími fastur í stundaskrá. Í nemendaráði sitja fulltrúar beggja kynja og allra árganga.


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi