Opið hús í Versló

Versló mun bjóða upp á Opið hús sérstaklega fyrir grunnskólanemendur tvívegis á þessari önn. Fyrra Opna húsið verður miðvikudaginn 24. febrúar frá kl. 18 – 20 og það síðara í júní.

Þann 24. febrúar verður nemendum og foreldrum/forráðamönnum boðið að koma og skoða skólann, fá upplýsingar um námið og félagslífið, spjalla við skólayfirvöld, námráðgjafa og kennara. Nemendur munu sýna húsnæðið og einhverjar skemmtilegar uppákomur verða á þeirra vegum.

Heimsókn í Menntaskólann í Reykjavík.


Til nemenda og forráðamanna nemenda grunnskóla er hafa áhuga á að koma í heimsókn í MR á vormisseri 2010.
Boðið er í heimsókn í MR á þriðjudögum kl.15:00. Þetta gildir um tímabilið frá 19.janúar til 16. mars (báðir dagar meðtaldir), aðrar dagsetningar koma til greina ef óskað er. Náms- og starfsráðgjafi skólans kynnir nám og nemendur kynna félagslíf skólans. Einnig er farið í gönguferð um húsnæðið. Heimsóknin tekur um það bil 45 mínútur.

Hafið samband við Guðrúnu Þ. Björnsdóttur náms- og starfsráðgjafa, netfang gudrunth@mr.is eða í síma 545 1929 til að heimsókn.

 

Opið hús í Fjölbrautaskóla Ármúla


Opið hús verður í FÁ fimmtudaginn 4. mars kl: 17:00 – 19:00 þar sem stjórnendur, kennslustjórar, nemendur og náms- og starfsráðgjafar verða til viðtals.

Iðnskólinn í Hafnarfirði

Iðnskólinn í Hafnarfirði verður með Opið hús þriðjudaginn 9. mars og fimmtudaginn 11. mars kl. 13:30 til 16:00. Bóka þarf fyrirfram fyrir hópa hjá náms- og starfsráðgjafa skólans.

Tækniskólinn - skóli atvinnulífsins

Tækniskólinn býður nemendum grunnskólanna í heimsókn á Skrúfu- og kynningardegi skólans laugardaginn 27. febrúar n.k.
Opið hús verður frá kl. 12-16. Kynningar á skólanum munu fara fram þennan dag kl. 13, 14 og 15, mæting í andyri á Háteigsvegi eða Skólavörðuholti.
Kynntir verða námsmöguleikar skólans og margt spennandi í boði. Hægt verður að kíkja í siglingahermi og vélahermi skólans. Nemendur verða á staðnum og sýna verk sín.
Nánari upplýsingar munu koma á heimasíðu skólans þegar nær dregur www.tskoli.is


Opið hús í Kvennaskólanum

Opið hús í Kvennaskólanum fimmtudaginn 8. apríl kl. 17:30 – 19:30 (ekki þann 20. eins og áður hafði verið auglýst).


Þar gefst grunnskólanemendum og forráðamönnum þeirra tækifæri til að koma í heimsókn í skólann, kynna sér námsframboð, félagslíf nemenda og skoða skólann. Í opna húsinu verða viðstaddir stjórnendur, kennarar,
náms- og starfsráðgjafar og fulltrúar nemenda.

 

Opið hús Menntaskólans við Hamrahlíð

Opið hús í Menntaskólanum við Hamrahlíð verður 18. mars frá 17:30-20:00. Nánar auglýst síðar

Opið hús í Fjölbrautaskóla Garðabæjar

Opið hús í FG – miðvikudaginn 24. febrúar klukkan 16:00-18:00.
Námsráðgjafar, stjórnendur, kennara og nemendur munu kynna skólann.

Menntaskólinn Hraðbraut

Opið hús fyrir nemendur, aðstandendur þeirra, og aðra sem hafa áhuga á að kynna sér skólann, verður haldið í Menntaskólanum Hraðbraut þann 18. febrúar kl. 16:00 – 18:00.


 Menntaskólinn við Sund

Opið hús verður fyrir nemendur 10. bekkjar og foreldra/forráðamenn þann 17. mars kl.17:00 – 19:30.


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi