Skólinn
Í Garðaskóla eru einstaklingar gerðir ábyrgir fyrir gjörðum sínum í leik og starfi og ætlast til að þeir vinni í sínum málum á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Við styðjum við unglingana okkar svo þeir megi vaxa og þroskast sem sjálfstæðir einstaklingar. Starfsmenn nýta sér hugmyndir og aðferðir uppbyggingarstefnunnar til að koma þessum markmiðum í verk.
Skólinn státar af öflugri fagkennslu bæði í bóklegum og verklegum greinum. Fagstjórar halda utan um starfið í hverri námsgrein og stýra hópum fagkennara. Fagkennslan byggist á mikilli samvinnu hjá viðkomandi fagkennurum.
Í 8. bekk er bekkjarkerfi og áhersla er lögð á að nemendur fái gott svigrúm sitt fyrsta ár í skólanum til að aðlagast vinnubrögðum og samskiptareglum skólans. Í 9. og 10. bekk er hópakerfi sem byggist upp á áþekkan máta og áfangakerfi fjölbrautaskóla. Nemendur raðast í kjarnagreinar eftir frammistöðu/námsgetu og hver nemandi fær eigin stundaskrá. Dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði er skipt upp í mismunandi námshraða. Farið er í sömu námsþætti en námsgögn eru mismunandi eftir ferðum. Hefðbundið skólastarf er reglulega brotið upp t.d. með gagn og gaman þemadögum að hausti, vorferðum árganganna og ýmsum uppákomum í skólanum, t.d. leiksýningum og fræðsluerindum.
Garðaskóli skapar hverjum nemanda námsumhverfi sem hentar honum. Leitast er við að koma til móts við óskir og þarfir nemenda eins og mögulegt er með hópakerfinu og fjölbreyttu vali. Við leggjum áherslu á að gera nemendum kleift að stunda nám á framhaldsskólastigi og flýta þar með för nemenda sem það kjósa í gegnum skólakerfið. Nú bjóðum við áfanga í verk- og listgreinum til viðbótar við bóklegu áfangana sem lengi hafa verið kenndir. Þeir nemendur sem þurfa stuðning í námi geta nýtt sér fjölbreytt úrræði. Sérkennsla er skipulögð bæði í fámennum námshópum og sem stuðningur inni í bekkjum. Undanfarin ár hefur Námsver gegnt lykilhlutverki í sérkennslu skólans, bæði fyrir getulitla og getumikla nemendur. Þar fá nemendur aðstoð með ákveðin verkefni til lengri eða skemmri tíma.
Við skólann starfa tveir náms- og starfsráðgjafar og gegna þeir mikilvægu hlutverki. Þeir eru lykilaðilar í eineltisteymi skólans og styðja við nemendur á fjölbreyttan hátt bæði námslega og persónulega. Námsráðgjafar stjórna starfi nemendaráðgjafa en það er lítill hópur nemenda sem tekur að sér ýmis verkefni er varða hagsmuni og líðan nemenda í skólanum.
Félagslíf nemenda er mjög öflugt og fjölbreytt. Nemendafélag Garðaskóla skipuleggur félagslíf í samstarfi við félagsmiðstöðina Garðalund. Nemendur hafa m.a. mjög góða aðstöðu til tónlistariðkunar og í skólanum hafa undanfarið ár orðið til góðar og frambærilegar hljómsveitir. Nemendaráð Garðaskóla fylgist með aðbúnaði, skipulagi og starfsháttum í skólanum og vinnur náið með stjórnendum að því þróa og bæta skólann.
Við leggjum ríka áherslu á gott samstarf við foreldra og stöðuga upplýsingagjöf. Þar gegna umsjónarkennarar lykilhlutverki og nýta Mentor til að miðla upplýsingum. Á heimasíðu skólans má nálgast upplýsingar um skólann og fylgjast með daglegu starfi.
Undirbúningur er hafinn að stofnun verk- og starfsnámsbrautar við Garðaskóla til að geta í auknum mæli boðið upp á valáfanga í starfstengdum greinum og koma þannig til móts við nemendur sem hneigjast að list- og verkgreinum. Tilkoma verk- og starfsnámsbrautar mun gera skólanum enn betur kleift að byggja upp sjálfstæða, ábyrga og jákvæða einstaklinga.