Undanfarin ár hefur námsverið í Garðaskóla gegnt lykilhlutverki í sérkennslu skólans, bæði fyrir getulitla og getumikla nemendur. Í námsveri fá nemendur tímabundna aðstoð sem sniðin er að þörfum hvers og eins á því sviði sem þörf er á. Í námsveri hittast nemendur úr ýmsum áttum og þar finna nemendur vel að þeir fá stuðning þar sem þeir þurfa á honum að halda. Mikil áhersla er lögð á að námsverið haldi áfram að þróast og styrkja stöðu sína sem lykilþáttur í starfsemi skólans.