19. mars 2010

Fjölsótt Opið hús í Garðaskóla!

Það var líf og fjör í Garðaskóla miðvikudaginn 16. mars sl. þegar skólinn bauð nýnemum úr 7. bekk grunnskólanna í Garðabæ að kynna sér skólann og stafsemi hans. Skemmtilegt var hversu margir foreldrar og nemendur gátu séð sér fært að koma að morgni til og kynna sér skólann á starfstíma hans og sjá og ræða við nemendur að störfum við nám og leik.
Síðdegis var síðan fjölmennur kynningarfundur og skoðunarferð um skólann fyrir þá sem ekki komust að degi til. Ekki var annað að sjá en að bæði gestir og gestgjafar hefðu ánægju af þessum heimsóknum – og mikið var spurt og mörgu svarað. Gestum skólans eru þakkaðar einkar ánægjulegar heimsóknir en auðvitað eru foreldrar og nemendur hvenær sem er velkomið að líta inn og heimsækja skólann.

Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi