Frétt
Listadagar í Garðaskóla
Dagana 26.-28. apríl var skólastarf í Garðaskóla með breyttu fyrirkomulagi. Þemadagarnir báru heitið ,,Leikur og Gaman – Að leika sér” og voru hluti af Listadögum sem eru í Garðabæ síðustu viku aprílmánaðar.
Nemendur fóru í leikjahringekju fyrri þemadaginn en seinni daginn voru listasmiðjur starfræktar á ákveðnum svæðum í skólanum eða utan hans þar sem nemendur unnu ýmis konar verkefni.
Sýning á úrvinnslu og verkefnum nemenda fór fram á ýmsum stöðum í húsnæði skólans miðvikudaginn 28. apríl. Opið hús var fyrir gesti og gangandi frá kl. 10.30-12.00. Forráðamenn og annað skyldfólk mætti til að og afraksturinn. Kaffi var í boði skólans og öllum boðið upp á bragðgóðar og listilega skreyttar múffur bakaðar af nemendum skólans.
Dæmi um hópa:
Fuglahræður hannaðar, graff, skartgripagerð, mosaík, tauþrykk, andlits- og líkamsmálun.
Búnir til leikir s.s. borðspil og tölvuleikir, spilað á spil, billjard og mínígolf.
Reiðhjólaverkstæði, módelsmíði og skutlugerð, hekl og prjón.
Stuttmyndagerð, dans, tónlist og söngur.
Smellið hér til að sjá myndir frá leikjahringekjunni.
Smellið hér til að sjá myndir frá Listasmiðjum