Frétt
Gróðursetning Grænu bylgjunnar
Föstudaginn 21. maí komu börn frá grunnskólum á öllu höfuðborgarsvæðinu saman innan síns sveitarfélags til að gróðursetja tré undir hatti Grænu bylgjunnar (Green Wave), sem er alþjóðlegt verkefni sem Samningurinn um líffræðilegan fjölbreytileika stendur fyrir í tengslum við dag líffræðilegs fjölbreytileika 22. maí. Þennan dag gróðursetja börn um víða veröld tré og mynda þannig „Græna bylgju“ um allan heiminn, en viðburðinum er ætlað að vekja athygli á hugtakinu líffræðilegur fjölbreytileiki og leyfa skólabörnum að hafa áhrif, eitt tré og eitt skref í einu.
Skógræktarfélag Íslands, Yrkjusjóður - sjóður æskunnar til ræktunar landsins - og umhverfisráðuneytið efndu til þessa viðburðar á höfuðborgarsvæðinu, en þar var gróðursett innan hvers sveitarfélags - við Varmárskóla í Mosfellsbæ, við Gufunesbæ í Reykjavík, við Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi, við skógarreit við Tungu (rétt hjá Lindaskóla) í Kópavogi, á Smalaholti í Garðabæ, á Víðistaðatúni í Hafnarfirði og við Álftanesskóla á Álftanesi. Tókst þetta vel til, en gróðursetjarar voru á öllum aldri, frá fyrsta upp í tíunda bekk.
Hér má sjá myndir frá gróðursetningu fulltrúa nemenda í grunnskólum Garðabæjar í Smalaholti en fulltrúar Garðaskóla voru þau Marta Pavlov og Kristján Fannnar Leifsson úr 10.bekk.