Mynd með frétt04. feb. 2012

Framhaldsskólakynning

Þann 1.febrúar var haldin árleg framhaldsskólakynning fyrir nemendur í 10.bekk og forráðamenn þeirra. Kynningin var fyrir alla 10.bekkinga í Garðabæ og á Álftanesi. Kvöldið var vel heppnað og hafa aldrei verið eins margir framhaldsskólar hér hjá okkur ásamt fulltrúa frá Menntamálaráðuneyti sem var til taks fyrir þá sem vildu fá upplýsingar um innritun í framhaldsskóla. ... [ nánar ]
04. feb. 2012

Kynning á lestrarkennsluforritinu Easy Tutor

Miðvikudaginn 8. febrúar nk. ætla stjórnendur Garðaskóla að bjóða nemendum sínum, sem glíma við lestrarerfiðleika af einhverju tagi, og foreldrum þeirra á kynningarfund í Garðaskóla þar sem lestrarkennsluforritið EASY TUTOR verður kynnt. Hrönn Birgisdóttir iðjuþjálfi frá TMF Tölvumiðstöð mun segja frá forritinu og notkunarmöguleikum þess. Fundurinn hefst klukkan 17:00 og verður í stofu 301. ... [ nánar ]
Mynd með frétt30. jan. 2012

Spænskunemendur gera veggspjöld

Næstkomandi miðvikudag koma framhaldsskólarnir og kynna starfsemi sína fyrir nemendum og foreldrum þeirra. Við þetta tækifæri er oft sýnd vinna nemenda og hér eru nemendur í spænskuvali að gera veggspjöld í þeim tilgangi. Þótt orðaforði þeirra sé ekki ennþá mikill þá er ekki það sama sagt um áhugann. Nemendur nota orðabækur og netið til að afla upplýsinga og leitast við að láta veggspjöldin sýna eitthvað sem tengist landi og ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. jan. 2012

Framhaldsskólakynning 1.febrúar í Garðaskóla

Nemendaráðgjafar og námsráðgjafar eru þessa dagana að undirbúa kynningu framhaldsskólanna sem verður haldin í Garðaskóla næstkomandi miðvikudag 1.febrúar kl. 17.30 – 19.00. Fulltrúar frá fjórtán framhaldsskólum koma þá til okkar og verða tilbúnir að svara spurningum um námsframboð og inntökuskilyrði skólanna. Allir nemendur í 10.bekk og forráðamenn þeirra eru hvattir til að mæta. ... [ nánar ]
Mynd með frétt19. jan. 2012

Heimsókn frá VR

Fulltrúar frá VR komu í náms- og starfsfræðslutíma og kynntu fyrir nemendum í 10. bekk réttindi og skyldur ungmenna á vinnumarkaði. Fyrirlestrarnir voru mjög fróðlegir og skemmtilegir og vekja nemendur til umhugsunar um hvað ber að hafa í huga þegar á vinnumarkaðinn er komið en ljóst er að hópur nemenda í 10. bekk eru þegar farnir að vinna með skóla. ... [ nánar ]
02. jan. 2012

Gleðilegt ár

Starfsfólk Garðaskóla óskar nemendum, foreldrum og öllum samstarfsaðilum skólans gleðilegs árs með þökk fyrir samstarfið á liðnu ári. Nemendur mæta með foreldrum í viðtöl hjá umsjónarkennara fimmtudaginn 5. janúar skv. tímaáætlunum sem umsjónarkennarar hafa sent út. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 6. janúar.... [ nánar ]
Mynd með frétt20. des. 2011

Gleðilega hátíð

Starfsfólk Garðaskóla óskar nemendum, fjölskyldum þeirra og öllum velunnurum skólans gleðilegrar hátíðar og þakkar fyrir gott samstarf á liðnu ári. Skrifstofa skólans er lokuð 20. desember til 2. janúar en starfsmenn mæta aftur til starfa 3. janúar 2012. Skólastarf hefst að nýju fimmtudaginn 5. janúar með foreldra- og nemendaviðtölum. Þann dag verða óskilamunir til sýnis á borði staðsettu við inngang skólans og eru nemendur og foreldrar vinsamlegast beðnir um að skoða þá vel. Eftir foreldraviðtölin verða ósóttir munir gefnir í fatasöfnun Rauða krossins.... [ nánar ]
Mynd með frétt16. des. 2011

Nemendaráðgjafar með eineltisfræðslu

Þessa vikuna hafa nemendaráðgjafar í 9.og 10.bekk verið með eineltisfræðslu fyrir nemendur í 8.bekkjum. Í síðustu viku fóru nemendaráðgjafar inn í bekki til þeirra og spurðu þau nokkurra spurninga um einelti og krakkarnir í 8.bekk skrifuðu á miða það sem þau vildu ræða um við nemendaráðgjafana. Í fræðslunni var umræðan tekin upp og nemendaráðgjafar svöruðu spurningu þeirra og ræddu um einelti og afleiðingar þess.... [ nánar ]
14. des. 2011

Mánudagur 19. desember

Síðasti kennsludagur í Garðaskóla er 19. desember. Nemendur mæta í umsjónarstofur kl. 9.00 þar sem einkunnaafhending fer m.a. fram. Jólastund verður kl. 17.00 sama dag. Umsjónarhópar hafa skipulagt dagskrá í umsjónarstofum en einnig verður dagskrá í gryfju. ... [ nánar ]
Mynd með frétt14. des. 2011

Bókakynning á skólasafninu

Dagana 12. og 13. des. fór fram hin árleg jólabókakynning á safni skólans. Tveir til þrír hópar komu í hverri kennslustund og fengu kynningu á þeim nýju bókum sem keyptar hafa verið á safnið. Kynningin er liður í að glæða áhuga nemenda á lestri og mælist alltaf vel fyrir. Nú þegar er stór hluti nýju bókanna kominn í útlán. ... [ nánar ]
30. nóv. 2011

Próf og kennsla í Garðaskóla

Dagana 2.-7. desember taka allir nemendur próf kl. 8.20-9.30 samkvæmt próftöflu. Að hverju prófi loknu tekur við hefðbundin stundaskrá. Það er viðbúið að nemendur séu undir álagi á meðan próf og annað námsmat við annarlok standa yfir. Því er sérstaklega mikilvægt að muna að sofa vel, borða hollan mat og skipuleggja störf sín þannig að ekkert verði útundan. ... [ nánar ]
Mynd með frétt24. nóv. 2011

Prjónað til styrktar Japan

Í haust tóku textílvalhópar 9. bekkjar þátt í verkefni til styrktar Japönum sem misstu heimili sín í stóra jarðskjálftanum í mars sem lagði heilu þorpin í rúst. Verkefnið fólst í því að prjóna á heimilislausa og illa stadda einstaklinga vettlinga, húfur og sokka en í Japan eru veturnir langir og kaldir eins og hér heima. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. nóv. 2011

Nemendaráð Garðaskóla 2011-12

Nemandaráð Garðaskóla er hópur nemenda í Garðaskóla sem sitja reglulega fundi og ræða saman um hvernig hægt er að bæta ýmis málefni skólans. Nemendaráð samanstendur af ungmennum úr 8.-10. bekk skólans. Þeir sem sitja í nemendaráði eru eftirfarandi: Andri Pétur Hafþórsson-8.HV, Þórunn Jónsdóttir-9.ÞJ, Sara Sól Hannesdóttir-9.SR, Erlingur Gunnarsson-10.SG, Sóley Ásgeirsdóttir-10.HT, Andri Páll Halldórsson-8.ÓÁG, Jón Hallmar Stefánsson-8.MGM og Vésteinn Örn Pétursson-8.MGM. ... [ nánar ]
21. nóv. 2011

9. bekkur í leikhúsferð

Í morgun fóru allir nemendur í 9. bekk í leikhúsferð. Haldið var í Kassann í Þjóðleikhúsinu að sjá sýninguna „Hvað ef?“ Sýningin er mikilvægt innlegg í forvarnarfræðslu Garðaskóla og var ánægjulegt að sjá hvað nemendur voru áhugasamir og spurðu góðra spurninga í lok sýningarinnar. Eins og svo oft áður voru nemendur skólans til fyrirmyndar í allri framkomu og hegðun. ... [ nánar ]
Mynd með frétt20. nóv. 2011

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í skólanum að vanda. Eitt og annað var gert af því tilefni. Má þar nefna að nemendur fengu góða heimsókn tveggja rithöfunda sem lásu upp úr nýjum verkum sínum á bókasafninu. Þetta voru þær Jónína Leósdóttir og Arndís Þórarinsdóttir. Þær lásu upp úr nýútgefnum bókum sínum en þær skrifa báðar fyrir unglinga. Upplesturinn fór fram á bókasafni skólans þar sem þær lásu fyrir einn árgang í einu. Þeim var ansi vel tekið og litu nemendur á heimsókn þeirra sem skemmtilegt og áhugavert uppbrot. Auk þess sem nemendur gerðu í kennslustundum í tilefni dagsins undirbjuggu þeir heimsóknir á stofnanir bæjarins. Í þeim heimsóknum lásu þeir m.a. sögur fyrir leikskólabörn, ljóð voru lesin í anddyri íþróttahússins, bæjarskrifstofunum, verslunum og fleiri stöðum í Garðabæ. Ekki má gleyma því að starfsmenn skólans fengu einnig að njóta upplestursins. Hópur nemenda spilaði á gítar og söng fyrir eldri borgara og leikskólabörn. Ánægja og gleði skein úr hverju andliti. Nemendum var alls staðar mjög vel tekið og fundu þeir velvilja og þakklæti fyrir uppákomurnar. Íslenskukennarar eru mjög stoltir af frábærum nemendum sínum sem eru sjálfum sér, forráðamönnum sínum og skólanum til sóma. ... [ nánar ]
Mynd með frétt18. nóv. 2011

Dagur íslenskrar tungu

Í tilefni af Degi íslenskrar tungu komu tveir rithöfunda í heimsókn á skólasafnið og kynntu og lásu upp úr nýútgefnum bókum sínum. Þær Jónína Leósdóttir og Arndís Þórarinsdóttir skrifa báðar sögur fyrir unglinga og lásu upp fyrir alla nemendur skólans, ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. nóv. 2011

Gegn einelti í Garðaskóla

Í Garðaskóla fer fram skipulögð vinna að því að bæta samskipti nemenda og vinna gegn einelti. Forvarnir og umræður um einelti eru fastur liður í lífsleiknikennslu skólans. Í daglegu skólastarfi er starfsfólk skólans alltaf að vinna gegn einelti með því að leiðbeina og hvetja nemendur til að hafa jákvæð samskipti sín á milli. ... [ nánar ]
15. nóv. 2011

Leikhúsferð 9. bekkjar

9. bekk er boðið á leikritið „HVAÐ EF“ mánudaginn 21. nóvember. Sýningin er í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Allir nemendur í 9. bekk mæta kl. 08.10 og tekið verður manntal. Farið verður í rútum, sem leggja af stað kl. 08.20.... [ nánar ]
Mynd með frétt11. nóv. 2011

11.11.11 – dagur skólans

Garðaskóli hélt upp á 45 ára afmæli sitt í dag föstudaginn 11. nóvember. Nemendafélagið tók vel á móti nemendum þegar þeir mættu í skólann, allir voru skreyttir með borðum og boðið sætindi. Umsjónarbekkir skemmtu sér saman í 3-4 stund og í kjölfarið dönsuðu nemendur út í íþróttahús þar sem nemendur og starfsfólk skemmtu hver öðrum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt08. nóv. 2011

Dagur gegn einelti

Sérstakur dagur gegn einelti var 8. nóvember og í tilefni dagsins unnu nemendur Garðaskóla með hugtakið jákvæð samskipti. Nemendur fóru með kennurum sínum yfir það hvað einkennir jákvæð samskipti sem og hvernig sé hægt að sporna við einelti. ... [ nánar ]
28. okt. 2011

Gagn og gaman

Dagana 2.-4. nóvember eru haldnir gagn og gaman dagar í Garðaskóla. Þá er hefðbundið skólastarf brotið upp og nemendur taka þátt í fjölbreytilegum verkefnum að eigin vali. Hópastarfið hefst kl. 13.20 þriðjudaginn 1. nóvember á kynningarfundi leiðbeinenda með hópunum sínum.... [ nánar ]
20. okt. 2011

Nemenda- og foreldraviðtöl

Þriðjudaginn 25 október eru nemenda- og foreldraviðtöl og fellur annað skólastarf niður á meðan. Mánudaginn 24. október er starfsdagur í Garðaskóla og því fellur kennsla niður. ... [ nánar ]
Mynd með frétt19. okt. 2011

Forvarnarsamtökin Blátt áfram í heimsókn í Garðaskóla

Fulltrúar frá forvarnarsamtökunum Blátt áfram komu í heimsókn til okkar í Garðaskóla í sl.viku og hittu nemendur í 8.bekk. Blátt áfram eru sjálfstæð félagasamtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi... [ nánar ]
10. okt. 2011

Náms- og starfsfræðsla í 10. bekk

Nemendur í 10. bekk eru í náms- og starfsfræðslu hjá námsráðgjafa einu sinni í viku. Markmiðið er að undirbúa nemendur undir það að færast yfir á næsta skólastig og kynna fyrir þeim vinnumarkaðinn. Í þessari viku fá nemendur fræðslu um framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu og er óhætt að segja að margar spurningar vakna sem gefa tilefni til frekari umræðu um fjölbreytta möguleika til náms á framhaldsskólastigi. ... [ nánar ]
Mynd með frétt30. sep. 2011

Morgunkaffi í 8.HV.

Foreldrar og nemendur í 8.HV hittust í morgunkaffi í umsjónarstofu síðastliðinn þriðjudag. Foreldrafulltrúar bekkjarins stóðu fyrir skipulagi, en foreldrar komu með veitingar á hlaðborð. Það ríkti sannkölluð kaffihúsastemning og allir nutu þess að byrja daginn á notalegri stund áður en tekist var á við verkefni dagsins. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. sep. 2011

Portrettmyndir í myndmennt

Í áttunda bekk hafa nemendur í mynmennt verið að læra um hlutaföll andlits og í framhaldi af því teiknað portrettmyndir af völdum einstaklingum. Sumir hafa gert sjálfsmyndir. Einstaklega vel hefur tekist til og er nú verið að hengja upp myndir eftir hópana á veggi skólans. ... [ nánar ]
26. sep. 2011

Nám og kennsla 2011-2012

Nú er bæklingurinn Nám og kennsla 2011-2012 aðgengilegur hér á heimasíðu Garðaskóla. Í bæklingnum eru birtar ýmsar upplýsingar um kennsluaðferðir, námsmat og helstu áhersluþætti þeirra námsgreina sem kenndar eru í vetur. Það er von stjórnenda og kennara Garðaskóla að nemendur skólans og foreldrar þeirra kynni sér sem best þessar upplýsingar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. sep. 2011

Gauragangur í Garðaskóla

Síðastliðinn mánuð hafa nemendur í 9. bekk í Garðaskóla lesið skáldsögu Ólafs Hauks Símonarsonar, Gauragangur. Ýmis verkefni voru unnin í tengslum við lesturinn en vinnulotan endaði með því að horft var á nýlega bíómynd byggða á sögunni. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. sep. 2011

Stúlkurnar í ARL fóru í golf í GKG

Hlynur golfkennari tók á móti okkur og sýndi okkur hvernig á að halda á golfkylfu og hvernig við eigum að standa þegar við sláum golfbolta. Stúlkurnar stóðu sig mjög vel, slógu t.d. með 7 járni allt að 100 m högg. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér golfíþróttina betur endilega skoðið heimasíðu klúbbsins: gkg.is... [ nánar ]
12. sep. 2011

Samræmd próf í 10. bekk

Dagana 19.-21. september eru samræmd próf í þremur námsgreinum lögð fyrir nemendur 10.bekkjar. Stundaskrá annarra nemenda raskast vegna þessa. Til þess að prófin fari eðlilega fram við bestu aðstæður, nemendur 10. bekkjar njóti næðis og yfirseta og önnur störf tengd prófunum séu í lagi boðum við nemendur 8. og 9. bekkjar í skólann kl. 12.00 prófdagana þrjá. ... [ nánar ]
Mynd með frétt12. sep. 2011

Slökun

Slökun og teygjur er nýtt valfag í 10.bekk. Í vetur eru alls fjórir hóparnir eða rúmlega 50 nemendur. Kennt er í 40 mín í einu, hver tími byrjar á svokallaðri skönnun þar sem farið er yfir alla vöðva líkamans, þannig að viðkomandi nær góðri slökun. Síðan framkvæmum við ýmsar teygjuæfingar með djúpri öndun.... [ nánar ]
11. sep. 2011

Skólahreysti ný valgrein

Ný valgrein – skólahreysti – verður í boði fyrir nemendur 9. og 10. bekkja í vetur. Valgreinin er ein kennslustund á viku, miðvikudaga kl. 15.20-16.00 og þar er lögð verður áhersla á æfingar og undirbúning fyrir Skólahreystikeppnina í vetur. Það eru laus pláss í hópnum og nemendur sem hafa áhuga á að vera með geta snúið sér til Ingibjargar Önnu Arnarsdóttur aðstoðarskólastjóra. ... [ nánar ]
11. sep. 2011

Vélhjól á skólalóðinni setjum öryggið á oddinn

Fleiri nemendur en áður eiga vélknúin hjól t.d. skellinöðrur og rafvespur. Síðastliðið vor og nú á haustdögum hefur starfsfólk skólans tekið eftir aukinni umferð þessara tækja á lóð skólans og stundum ber því miður á því að eigendur tækjanna gæta ekki fyllstu varúðar. Unglingarnir hafa verið hjálmlausir á hjólunum, sést 2-3 saman á hjóli og stundum hafa hjólin verið lánuð þeim sem kunna ekki nógu vel með þau að fara. ... [ nánar ]
29. ágú. 2011

Skrifstofa Garðskóla lokuð vegna námskeiðs

Þriðjudaginn 30. ágúst verður skrifstofa Garðaskóla lokuð frá kl. 14.30 vegna námskeiðs starfsmanna. ... [ nánar ]
27. ágú. 2011

Matsala Garðaskóla opnar mánudaginn 29. ágúst.

Matsalan verður opin alla skóladaga kl. 9-13.45 og þar er hægt að vera í áskrift að heitum mat, versla drykki, brauð, jógúrt, ávexti og fleiri smárétti. Hægt er að greiða með skólakortinu, peningum og debetkorti. ... [ nánar ]
26. ágú. 2011

Haustfundir með foreldrum

Boðað er til fundar með foreldrum nemenda Garðaskóla fimmtudaginn 1. september 2011 kl. 8.20 – 9.00. Nemendur mæta í skólann kl. 9.50 eða samkvæmt stundaskrá. ... [ nánar ]
22. ágú. 2011

Matsala Garðaskóla lokuð

Matsala Garðskóla verður lokuð fyrstu skóladagana af ástæðum sem skólinn ræður engu um. Við hvetjum nemendur til að koma með hollt og gott nesti í skólann á meðan á þessu stendur og hafa það í huga að ekki er hægt að þrífa áhöld eftir máltíðir eins og þegar matsalan er opin. ... [ nánar ]
08. ágú. 2011

Skólasetning 22. ágúst 2011

Skólasetning er mánudaginn 22. ágúst á sal skólans: 8. bekkur kl. 9.00 - 9. bekkur kl. 10.00 - 10. bekkur kl. 11.00 - Að lokinni móttöku á sal skólans fara nemendur með umsjónarkennurum sínum í stofur og fá gögn um skólabyrjun. Allir nemendur mæta í umsjónarstofur kl. 8.10 þriðjudaginn 23. ágúst og frá kl. 9.50 þann dag er kennsla samkvæmt stundaskrá nemenda. Með samstarfskveðju, starfsfólk Garðaskóla ... [ nánar ]
09. jún. 2011

Sumarkveðjur

Starfsfólk Garðaskóla óskar nemendum og forráðamönnum gleðilegs sumar og þakkar samstarfið á liðnum vetri. Skrifstofa skólans er lokuð vegna sumarleyfa frá 22. júní til 8. ágúst. Skólasetning verður 22. ágúst, nánar auglýst síðar.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. jún. 2011

Útskrift úr Garðaskóla

Í gær var útskrift allra árganga Garðaskóla og tóku 8. og 9. bekkur við einkunnum sínum fyrr um daginn og má sjá myndasafn frá útskrift hér. Útskrift 10. bekkjar var síðan kl. 18 og mættu nemendur með forráðamönnum sínum og tóku á móti burtfararskírteinum frá Garðaskóla. ... [ nánar ]
04. jún. 2011

Síðustu skóladagar vorið 2011

Mánudaginn 6. júní eru bóka- og skápaskil í skólanum. Nemendur mæta til umsjónarkennara kl. 10.30, skila bókum og ganga frá skápunum sínum. Að lokinni tiltekt er vorhátíð á skólalóðinni þar sem nemendur og kennarar leika saman og kveðjast. ... [ nánar ]
30. maí 2011

Útivistardagar í 8. bekk 1. og 3. júní 2011

Miðvikudagur 1.júní: ÞJ – MT – ÁJ – KFS mæta kl. 9.00 hjá sínum umsjónarkennara. Áætluð lok dagskrá kl. 12.40. MB mætir kl. 10.00 hjá sínum umsjónarkennara. Áætluð lok dagskrár kl. 13.40. ... [ nánar ]
30. maí 2011

Útivistardagar í 9. bekk 1. og 3. júní 2011

Mæting kl. 9.30 í skólann báða dagana hjá sínum umsjónarkennara. ... [ nánar ]
Mynd með frétt24. maí 2011

Hjartahlýja

Nemendur Garðaskóla hafa staðið fyrir söfnunarátaki til styrktar Daníel Vilberg og hafa gert það hver á sinn hátt og sýnt mikla hjartahlýju í garð samnemanda síns. Helga Bjarney gaf t.d. afmælispeninginn sinn 16000 krónur í söfnunarátakið. Þá sýndu fleiri krakkar hug sinn í verki með því að baka möffins og selja á skólatíma og á leiksýningum... [ nánar ]
23. maí 2011

Dagskrá eftir próf:

Miðvikudagurinn 1. júní: 10. bekkur fer í vorferðalag. Lagt af stað frá Garðaskóla kl. 13.30. 8. og 9. bekkir - dagskrá með umsjónarkennara. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. maí 2011

Heimsóknir á vegum Comenius samstarfs

Enskudeild Garðaskóla hefur undanfarin ár staðið fyrir umfangsmiklu samstarfi við skóla víða í Evrópu á vegum Comenius áætlunar Evrópusambandsins. Á síðustu vikum hafa nemendur og kennarar frá samstarfsskólum í Finnlandi, Þýskalandi og Frakklandi komið og heimsótt Garðaskóla.... [ nánar ]
Mynd með frétt17. maí 2011

Nemendaráðgjafar fara í heimsókn í Hofsstaðaskóla

Í síðustu viku fóru átta nemendaráðgjafar ásamt námsráðgjafa í heimsókn í Hofsstaðaskóla. Tilgangur heimsóknarinnar var að hitta og spjalla við nemendur í 7.bekk til að fræða þau um Garðaskóla og undirbúa þau betur undir skólaskiptin. Heimsóknin gekk vel og voru nemendur aðeins fróðari um Garðaskóla að heimsókn lokinni.... [ nánar ]
Mynd með frétt06. maí 2011

Heimsókn frá Holtaskóla

Á miðvikudaginn komu nemendaráðgjafar frá Holtaskóla í Keflavík í heimsókn til okkar í Garðaskóla og eyddu deginum með nemendaráðgjöfum Garðaskóla. Hópurinn tók strætó niður á Laugaveg 120 þar sem Reykjavíkurdeild Rauða Krossins var heimsótt.... [ nánar ]
Mynd með frétt03. maí 2011

Sumarið er komið

Nemendur Garðaskóla voru fljótir að koma sér út í fríminútur í góða veðrinu í dag. Boltavellirnir voru í stöðugri notkun og fjölmennt var á þeim. Sumir nýttu veðrið og settust í grasið og spjölluðu við félaga á meðan aðrir undirbjuggu sig fyrir næsta skólaverkefni. Nemendur voru sammála um að nú væri sumarið komið.... [ nánar ]
27. apr. 2011

Aðalfundur foreldrafélags Garðaskóla

Ágætu foreldrar nemenda í Garðaskóla, annað kvöld, fimmtudagskvöldið 28. apríl kl. 20 verður haldinn aðalfundur foreldrafélagsins. Að loknum hefðbundum aðalfundarstörfum mun Þorkell Jóhannsson náttúrufræði- og stærðfræðikennari við Garðaskóla segja frá raungreinaforriti sem nefnist Sunflower og raungreinakennslu í Garðaskóla. ... [ nánar ]
Mynd með frétt15. apr. 2011

Páskaeggjagerð - gleðilega páska

Nemendur í 8. bekk hafa undanfarna viku búið til sín eigin páskaegg í heimilisfræði. Þeir móta eggin sjálfir, setja sælgæti og málshátt inn í og skreyta að lokum eggin að utan. Verkefnið tókst mjög vel og krakkarnir hin lukkulegustu með fallegu páskaeggin sín. ... [ nánar ]
Mynd með frétt14. apr. 2011

Stærðfræðikeppni FG

Stærðfræðikeppni FG fyrir grunnskólanemendur var haldin 16. mars. Úrslit urðu þessi: ... [ nánar ]
Mynd með frétt13. apr. 2011

Skólaheimsókn í FG

Nemendur í 10.bekkjum hafa nú allir farið í heimsókn í Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Seinni hópurinn fór í morgun og fengu þau góða kynningu á námsframboðinu sem skólinn hefur upp á að bjóða. Þar er fjölbreytt nám í boði og gott að hafa hverfisskóla sem kemur á móts við nemendur með ólíkar þarfir og áhugasvið.... [ nánar ]
Mynd með frétt31. mar. 2011

Dagur barnabókarinnar - upplestur í Garðaskóla

Í tilefni af degi barnabókarinnar 2. apríl næstkomandi, var í dag frumflutt smásagan Hörpuslag eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur. Sagan var lesin í öllum hópum í Garðaskóla eins og í öðrum grunnskólum á landinu. Hún var flutt í ríkisútvarpinu Rás 1 á sama tíma. ... [ nánar ]
28. mar. 2011

Frábær árangur í PISA 2009

Nýlega voru kynntar niðurstöður á PISA 2009 sem er rannsókn OECD á færni nemenda í 10. bekk í lesskilningi, læsi í stærðfræði og náttúrufræði. Vorið 2009 tóku nemendur í 10. bekk Garðaskóla þátt í þessari rannsókn eins http://dagskra.ruv.is/ras2/4540541/2011/03/28/5/... [ nánar ]
Mynd með frétt22. mar. 2011

Marita- forvarnir í 9. og 10. bekk

Í næstu viku eða dagana 29. og 30. mars verða á dagskrá í Garðaskóla fræðslufundir Maríta um vímuvarnir fyrir nemendur í 9. og 10. bekk. Foreldrar eru síðan boðaðir á fund í framhaldi. ... [ nánar ]
Mynd með frétt21. mar. 2011

Skólahreysti 2011

Skólahreysti grunnskólanna hófst í Smáranum í byrjun mars, Garðaskóli var í riðli með skólum frá Kópavogi og Álftanesi. Íþróttahúsið Smárinn var þéttsetinn og mikil stemmning meðal áhorfenda, um sextíu stuðningsmenn úr Garðaskóla studdu sitt lið dyggilega. ... [ nánar ]
Mynd með frétt15. mar. 2011

Hlaðborð hugmynda í boði nemenda Garðaskóla

Föstudaginn 11. mars tóku nemendur, starfsfólk og fulltrúar foreldra þátt í skólaþingi á sal Garðaskóla. Nemendur og starfsfólk höfðu undirbúið þingið með verkefnavinnu sem kynnt var á sviði og í gryfjunni. Verkefnavinnan var grundvölluð á skólastefnu Garðabæjar. Hornsteinar skólastefnunnar voru ræddir og nemendur lögðu mat á með hvaða hætti mætti hrinda völdum þáttum í framkvæmd í starfi skólans. ... [ nánar ]
10. mar. 2011

Skólaþing Garðaskóla föstudaginn 11. mars 2011

Þemadögum lýkur í dag, föstudaginn 11. mars með skólaþingi. Foreldrar eru velkomnir á þingið sem fer fram á sal skólans kl. 11.00-13.00. Þeir sem geta ekki verið með allan tímann geta komið og skoðað sýningu á sal skólans þar sem verkefni sem nemendur hafa unnið á þemadögum hanga uppi. ... [ nánar ]
08. mar. 2011

Skapandi skóli þemadagar 9. til 11. mars

Dagana 9.-11. mars verður stór hluti nemenda Garðaskóla í skíðaferðalögum á vegum Garðalundar. Í tilefni þessa höfum við ákveðið að breyta til og í stað hefðbundinnar stundaskrár verða þemadagarnir „Skapandi skóli“ í gangi. ... [ nánar ]
Mynd með frétt07. mar. 2011

Gísli Súrsson í Garðaskóla

Miðvikudaginn 2. mars sl. var einleikur, byggður á sögu Gísla sögu Súrssonar, fluttur í Garðaskóla. Leiksýningin var kærkomin því áhorfendur, nemendur 10. bekkjar og flugferðarnemendur úr 9. bekk, höfðu nýlokið lestri sögunnar. ... [ nánar ]
18. feb. 2011

Vetrarfrí 21.- 25. febrúar

Vetrarfrí verður í Garðaskóla vikuna 21. - 25. febrúar. Skólastarf hefst á ný mánudaginn 28. febraúar skv. stundaskrá.... [ nánar ]
16. feb. 2011

Foreldrar , forvarnir og framhaldsskóli

Hvað getum við gert? Foreldrafélög Garðaskóla og Sjálandsskóla í samstarfi við forvarnanefnd Garðabæjar boða til fræðslufundar fyrir forrráðamenn í 10. bekk í Garðabæ miðvikudaginn 16. febrúar frá kl. 18 til 19.30. ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. feb. 2011

Iðnskólinn í Hafnarfirði í heimsókn

Nemendur í 10. bekk fengu góða gesti í heimsókn í náms- og starfsfræðslutíma í síðustu viku. Það voru fulltrúar frá Iðnskólanum í Hafnarfirði sem heimsóttu alla hópana í NOS og kynntu skólann fyrir nemendum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt08. feb. 2011

Íslandsklukkan - e. Halldór Laxness

Þessar vikurnar lesa nemendur í fjölbrautaáfanganum íslensku 203 Íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness og vinna margvísleg verkefni. Meðal verkefna má nefna viðamikla bókmenntaritgerð, efnisspurningar, hugleiðingar, hópverkefni og fleira. ... [ nánar ]
Mynd með frétt03. feb. 2011

Skemmti- og kynningarkvöld 10.bekkinga

Skemmti- og kynningarkvöld 10.bekkinga var haldið sl. þriðjudag í Garðaskóla. Þá komu fulltrúar frá tólf framhaldsskólum til okkar. Nemendur og forráðamenn þeirra höfðu því góðan aðgang að upplýsingum um nám í hverjum skóla fyrir sig. ... [ nánar ]
20. jan. 2011

Leynist handboltahetja heima hjá þér? HM 2011- TILBOÐ Í HANDBOLTA

Nú þegar íslenska landsliðið er að keppa á Heimsmeistaramótinu í Svíþjóð ætlar handknattleiksdeild Stjörnunnar að bjóða öllum krökkum á aldrinum 6 til 16 ára að koma á prufuæfingar í janúar og æfa frítt út febrúar mánuð. ... [ nánar ]
Mynd með frétt20. jan. 2011

Áhugasviðskönnun í 10. bekk

Um 90 nemendur í 10. bekk ákváðu að taka áhugasviðskönnun hjá námsráðgjöfum Garðaskóla en þátttaka var valfrjáls. Um er að ræða nýja íslenska rafræna áhugasviðskönnun sem ber nafnið Bendill I... [ nánar ]
Mynd með frétt19. jan. 2011

Verkefnavinna um Afríku

Undanfarið hefur verið unnið með Afríku í 9. bekk í samfélagsfræði. Þarna hefur verið um hópavinnu að ræða 3-5 nem. saman. Hóparnir hafa svo valið sér eitt af löndum álfunnar og fjallað um það og kynnt fyrir kennara og samnemendum sínum.... [ nánar ]
04. jan. 2011

Á döfinni:

Afhending einkunna fyrir haustönn verður föstudaginn 7. janúar kl. 12.40. Nemenda- og foreldraviðtöl verða miðvikudaginn 12. janúar. Tímasetningar verða sendar forráðamönnum í pósti. ... [ nánar ]
Mynd með frétt17. des. 2010

Gleðilegt nýtt ár.

Starfsfólk Garðaskóla óskar nemendum, fjölskyldum þeirra og öllum velunnurum skólans gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir góðar stundir á liðnum árum. Kennsla hefst aftur að jólaleyfi loknu miðvikudaginn 5. janúar skv. stundaskrá. Myndir frá jólaskemmtun. ... [ nánar ]
Mynd með frétt15. des. 2010

Upplestur og kynning á nýjum bókum á skólasafninu!

Í desember er venja að bjóða öllum nemendum skólans á skólasafnið til bókakynningar. Að loknum prófum 13. – 15. des. koma nemendur á safni, 1-2 hópar í senn. Nýjustu jólabækurnar sem keyptar hafa verið á safnið eru kynntar og lesið upp úr nokkrum þeirra. ... [ nánar ]
14. des. 2010

Jóladagskrá föstudaginn 17. Des 2010

Jóladagskrá föstudaginn 17. Des 2010 Nemendur mæta sem hér segir: Kl. 9.30: 10. bekkur Kl. 10.25: 8. bekkur Kl. 11.20: 9. bekkur Boðið er m.a. upp á heitt súkkulaði m/rjóma, tónlist, dans, söng og stuttmyndasýningu. Nemendur eru beðnir um að mæta snyrtilega klæddir. ... [ nánar ]
Mynd með frétt06. des. 2010

Myndagetraun á skólasafninu

Úrslit í Myndagetraun 3 á skólasafninu voru birt fimmtudaginn 2. des. 2010. Getraunin þótti nokkuð strembin og því var þátttaka ekki mikil. Alls tóku 44 nem. þátt í getrauninni að þessu sinni. 10 nemendur voru með öll svörin rétt og þurfti því að draga út vinningshafa. ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. nóv. 2010

Garðaskóli hlaut verðlaun fyrir fyrirmyndarverkefni Comeniusar

Heiti verkefnisins var FOOD – CULTRE and HEALTH. Afrakstur þessarar samvinnu er uppskriftabókin „International Cookbook“ sem nemendur frá öllum löndunum tóku þátt í að semja. Þeir söfnuðu uppskriftum frá heimalöndum sínum, prufuðu þær í skólaeldhúsunum og í gagnkvæmum heimsóknum þeirra hjálpuðust þau að við eldamennskuna. Einnig skrifuðu þeir um skólann sinn, heimabæ og eina fæðutegund sem er einkennandi fyrir viðkomandi land út frá næringar- og hollustugildi.... [ nánar ]
Mynd með frétt25. nóv. 2010

Heimsókn á Náttúrufræðistofu Kópavogs

Nýlega fóru nemendur í 9. bekk í heimsókn á Náttúrufræðistofu Kópavogs, þar sem er fjölbreytt safn náttúrugripa, ásamt búrum með bæði sjávar- og ferskvatnslífverum. Þar að auki stendur Náttúrufræðistofa að fræðslu og rannsóknum í náttúrufræðum og stuðlar að náttúru- og umhverfismennt. ... [ nánar ]
Mynd með frétt24. nóv. 2010

Nemendur í Garðaskóla sigra Stíl 2010

Fjórar stúlkur í 8. KFS þær Arna Dís, Hildur, Sara Líf og Tinna unnu Stíl 2010 sem haldin var í Vetrargarðinum í Smáralindinni laugardaginn 20. nóvember. Í ár var þemað Tilfinningar og unnu þær með tilfinninguna Innilokunarkennd. Alls tóku 65 lið þátt í keppninni í ár fyrir hönd sinnar félagsmiðstöðvar.... [ nánar ]
Mynd með frétt24. nóv. 2010

Upplestur á skólasafni

Í tilefni af degi íslenskrar tungu kom Þorgrímur Þráinsson rithöfundur í heimsókn og las upp úr nýútkominni bók sinni Þokunni. Hann las upp fyrir alla árganga, alls þrivsar sinnum og svaraði fyrirspurnum nemenda. Upplesturinn fór fram á safni skólans. Nemendur voru mjög ánægðir að lestri loknum og vilja ólmir lesa bókina. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. nóv. 2010

Ný myndagetraun á bókasafni

Ný myndagetraun er nú kominn upp á heimasíðu skólans. Að þessu sinni á að þekkja merka staði á Íslandi. Getraunin er örlítið þyngri en sú sem birtist í október, nú þarf að skrifa svarið en ekki velja á milli svarmöguleika... [ nánar ]
Mynd með frétt22. nóv. 2010

Nemendur Garðaskóla sigra Stíl 2010

Fjórar stúlkur í 8. KFS þær Arna Dís, Hildur, Sara Líf og Tinna unnu Stíl 2010 sem haldin var í Vetrargarðinum í Smáralindinni laugardaginn 20. nóvember. Í ár var þemað Tilfinningar og unnu þær með tilfinninguna Innilokunarkennd. Alls tóku 65 lið þátt í keppninni í ár fyrir hönd sinnar félagsmiðstöðvar.... [ nánar ]
Mynd með frétt11. nóv. 2010

Dagur skólans fjör og frelsi!

Það var aldeilis hátíðarbragur á starfi Garðaskóla fimmtudaginn 11.nóvember sem telst vera 44. afmælisdagur skólans sem hóf störf þennan dag árið 1966. Nemendur mættu prúðbúnir í hátíðarskapi og voru skreyttir viðhafnarborðum með viðeigandi virðingarmiklum áletrunum við hæfi ... [ nánar ]
Mynd með frétt11. nóv. 2010

Júdó í Garðaskóla

Þessa vikuna höfum við í hópunum Að rækta líkamann hér í Garðaskóla, fengið í heimsókn yngsta íþróttafélagið hér í Garðabæ, þ.e. Júdófélag Garðabæjar, en það hóf starfsemi sína s.l. september mánuð. Formaður þess er Björn Halldórsson, og yfirþjálfari.... [ nánar ]
08. nóv. 2010

Afmæli skólans 11. nóvember

Fimmtudaginn 11. nóvember er afmæli skólans. Dagskrá. Allir mæta í sparifötum. Kennsla hefst kl. 8.00 skv. stundaskrá Afmælisumsjónartími kl. 9.50 Skemmtidagskrá á sal og í íþróttahúsi kl. 11.20 Pizza, gos, krap á tilboði kr. 500 - ath kaupa þarf miða á miðvikudeginum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt28. okt. 2010

Nýherji sýnir nemendum Garðaskóla hlýhug!

Notkun myndavéla og myndbandstökuvéla er mikil í Garðaskóla. Við reglulega endurnýjun á tækjakosti til myndvinnslu var viðskiptaaðili okkar Nýherji hf. svo rausnarlegur að færa nemendum skólans að gjöf tvær góðar tökuvélar eina fyrir ljósmyndun og aðra fyrir kvikmyndir ... [ nánar ]
Mynd með frétt28. okt. 2010

,,Gagn og gaman" á fullu í Garðaskóla!

Það er bæði líf og fjör hjá nemendum Garðaskóla innan sem utan skóla þessa dagana. Langþráðir þrír uppbrotsdagar, ”Gagn og gaman” sem verið hafa við lýði í skólanum frá 1990 voru endurvaktir eftir eins árs dvala.... [ nánar ]
18. okt. 2010

Nemenda og foreldraviðtöl

Þriðjudaginn 19. nóvember eru nemenda og foreldraviðtöl í skólanum, annað skólastarf fellur niður á meðan.... [ nánar ]
Mynd með frétt13. okt. 2010

Hreystibraut og körfuboltavöllur!

Það var heldur betur líf og fjör við Flata- og Garðaskóla sl. fimmtudag þegar bæjarstjóri og fjölmargir tápmiklir krakkar vígðu tvö glæsileg íþróttamannvirki við skólana við hátíðlega athöfn Um var að ræða fullkomna hreystibraut við Flataskóla þar sem ... [ nánar ]
Mynd með frétt05. okt. 2010

Höfðingleg gjöf!

Garðaskóli fékk nýlega kærkomna heimsókn tveggja félaga í Stjörnuskoðunarfélagi Íslands þeirra Sævars Helga Birgissonar og Ottó Elíassonar sem færðu skólanum að gjöf tvo stjörnukíkja af Galíleó-gerð! ... [ nánar ]
Mynd með frétt04. okt. 2010

Gauragangur

Þessar vikurnar lesa nemendur í 9. bekk bókina Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson og vinna margvísleg verkefni. Verkefnin eru fjölbreytt; efnisspurningar, hugleiðingar, hópverkefni, reifun o.fl. Reifunin er framsagnarverkefni þar sem nemendur kynna ákveðna þætti úr bókinni og reifa eigin hugmyndir og rökstyðja þær. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. sep. 2010

8. bekkingar fjalla um ábyrgð

Í lífsleiknitímum í 8. bekk er hugtakið ÁBYRGÐ nú til umfjöllunar. Nemendur rýna í merkingu hugtaksins og fjalla um hvaða máli ábyrgð skiptir í skólanum, heima með fjölskyldunni og í lífinu almennt.... [ nánar ]
Mynd með frétt28. sep. 2010

Comenius 2008-2010

Garðaskóli hefur undanfarin ár unnið að ýmsum Comeniusar verkefnum sem styrkt hafa verið af Evrópsambandinu. Samstarfsskólar okkar eru frá Teningen í Þýskalandi, La Brouqe í Frakklandi, Lahti í Finnlandi, Lleida á Spáni, Bari á Ítalíu og Tianjin í Kína. ... [ nánar ]
23. sep. 2010

Skýrsla skólastjóra Garðaskóla

Ársskýrsla Garðaskóla fyrir skólaárið 2009-2010 er væntanleg innan skamms. Skýrslan í heild sinni er með breyttu sniði frá fyrri útgáfum og mun birtast á heimasíðu skólans en hér í pdf-skjali er skýrsla skólastjóra sem dregur fram meginþætti í starfi og stefnu skólans. ... [ nánar ]
15. sep. 2010

Til nemenda og foreldra í 8. og 9.bekk Garðaskóla:

SAMRÆMD PRÓF í 10.bekk haustið 2010 Dagana 20.-22. september verða samræmd próf í þremur námsgreinum lögð fyrir nemendur 10.bekkjar. Til þess að prófin fari eðlilega fram við bestu aðstæður, nemendur 10. bekkjar njóti næði næðis og yfirseta og önnur störf tengd prófunum séu í lagi boðum við nemendur 8. og 9. bekkjar í skólann kl. 12.00 prófdagana þrjá: mánudag, þriðjudag og miðvikudag (20.-22. sept.) í næstu viku. ... [ nánar ]
15. sep. 2010

Pistill skólastjóra á heimasíðu í september 2010

Heimanám – tilefni til umræðu? Í Garðaskóla fer nú fram á ýmsum vígstöðvum umræða um innra starf skóla í tengslum við endurskoðun aðalnámskrár og innleiðingu nýrrar skólastefnu Garðabæjar. Meðal annars ræða skólamenn tilgang og stefnu um heimanám nemenda. Sú umræða nær ekki aðeins til okkar í Garðaskóla heldur á hún sér stað víða um hinn vestræna heim a.m.k. – og sitt sýnist hverjum! ... [ nánar ]
14. sep. 2010

Föstudaginn 17.september er samræmdur skipulagsdagur í öllum leik—og grunnskólum Garðabæjar.

Föstudaginn 17.september er samræmdur skipulagsdagur í öllum leik—og grunnskólum Garðabæjar. Kennsla fellur því að öllu leyti niður þann dag.... [ nánar ]
14. sep. 2010

Samræmd próf í 10. bekk

Samræmd próf í 10. bekk fara fram dagana 20 - 22 september. Prófin byrja kl. 8.30 og standa til 11.30... [ nánar ]
30. ágú. 2010

Boðað er til fundar með foreldrum

Boðað er til fundar með foreldrum nemenda í 8.-, 9.- og 10. bekkjum fimmtudaginn 2. september nk. kl. 8.20 – 9.00. Fundurinn verður í viðkomandi umsjónarstofu. Nemendur mæta í skólann kl. 9.50 eða samkvæmt stundaskrá. Umsjónarkennarar kynna skólastarfið. Þrír bekkjarfulltrúar verða valdir til að vera m.a. tengiliðir við Foreldrafélag Garðaskóla. Þess er vænst að allir foreldrar sjái sér fært að koma á fundinn. ... [ nánar ]
17. ágú. 2010

Kynningarfundur fyrir forráðamenn 8. bekkjar

Stjórnendur Garðaskóla bjóða forráðamönnum væntanlegra nemenda í 8. bekk til kynningar á skólastarfi og félagslífi skólans. Fundurinn verður haldinn mánudaginn 23. ágúst kl. 18:00 -19:00 ... [ nánar ]
16. ágú. 2010

Skólasetning haustið 2010 í Garðaskóla

Skólasetning verður þriðjudaginn 24.ágúst: ... [ nánar ]

Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi