Hlutverk
Hlutverk bekkjarfulltúa er að stuðla að auknu samstarfi foreldra, kennara og nemenda innan hvers bekkjar.
Bekkjarfulltrúar skipuleggja í samvinnu við fulltrúa nemenda og umsjónarkennara eina til tvær bekkjarskemmtanir á vetri. Að sjálfsögðu er frjálst að skipuleggja þess utan samveru eða atburði og fá þá bekkjarfulltrúar gjarnan aðra foreldra í bekknum í lið með sér. Til dæmis fara á skauta, skíði, gönguferðir, sumarbústað eða hvað annað sem hópnum dettur í hug. Hugmyndir um skipulag bekkjarkvölda má sjá með því að smella á Bekkjarkvöld - Hugmyndabanki í stikunni til vinstri.
Makmiðið með bekkjarkvöldum er að:
-
Stuðla að samveru nemenda og foreldra
-
Foreldrar þekkist innbyrðis, þekki bekkjarfélagana og umsjónarkennara
- Allir nemendur og foreldrar þeirra hafi hittst utan skólatíma a.m.k einu sinni/önn
Bekkjarfulltrúinn er tengiliður foreldra við kennarann og kemur sjónarmiðum þeirra á framfæri þegar þess gerist þörf. Jafnframt er hann tengiliður foreldra við stjórn foreldrafélagsins, tekur þátt í fundum þess og miðlar upplýsingum í báðar áttir.