Bekkjarkvöld - Hugmyndabanki
Frá hugmynd til framkvæmdar
- Bekkjarfulltrúar skipuleggja bekkjarskemmtun í samvinnu við nemendur. Mikilvægt að skipulagning sé unnin með unglingunum.
- Bekkjarfulltrúar geta t.d. farið í umsjónartíma bekkjarins (í samráði við umsjónarkennara) og nemendur kjósa fulltrúa til að skipuleggja bekkjarskemmtun með bekkjarfulltrúum. Ath. gott er að fá netföng og gsm númer nemenda í umsjónartímanum.
- Bekkjarfulltrúar hitta síðan nemendur utan skólatíma og skipuleggja bekkjarskemmtun/viðburð þar sem öllum nemendur og foreldrum bekkjarins er boðið. Gott að minna nemendur á fundartímann með því að senda þeim sms.
- Félagsmiðstöðin Garðalundur er tilvalin til slíkra fundahalda. Sjá opnunartíma Garðalundar á heimasíðu Garðalundar. Starfsmenn Garðalundar eru einnig tilbúnir að aðstoða við undirbúning ef þess er óskað. Hægt senda póst á gardalundur@gardalundur.is eða hringja í 590 2575. Gunnar Richardson er forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar.
- Bekkjarskemmtun/viðburður getur verið hvað sem er en huga þarf að því að hann höfði til sem flestra og sé ekki of kostnaðarsamur fyrir heimilin.
Muna
- Boða til bekkjarskemmtunar með góðum fyrirvara, helst tveggja vikna fyrirvara.
- Bekkjarfulltrúar geta sent tölvupóst til foreldra í gegnum Mentor. Leiðbeiningar má sjá undir Póstsendingar úr Mentor í valstiku til vinstri.
- Senda ítrekun á foreldra deginum áður.
Hugmyndir
Bekkjarkvöld í Garðalundi: Hægt að fá afnot af Gryfjunni í Garðalundi í samvinnu við starfsmenn Garðalundar. Netfang: gardalundur@gardalundur.is , sími: 590 2575. Þar er hægt að hafa einhvers konar samverustund til dæmis með smá mat, skemmtun og tónlist
- Matur á skemmtikvöldi - Ýmsar útfærslur af því s.s.
- Allir komi með eitthvað á hlaðborð
- Fá afnot af heimilisfræðistofu og elda saman. Þarf þá áður að vera búið að ....
- Nemendur séu þegar búnir að elda í heimilisfræði fyrr um daginn. Þessi hugmynd á eingöngu við um 8. bekk þar sem nemendur bekkjarins eru saman í heimilisfræði. Bekkjarkvöld þarf þá að skipuleggja þann dag sem að heimilisfræði er í stundatöflu og vera áður búin að skipuleggja matseðil og innkaup í samráði við heimilisfræðikennara.
- Skemmtun - Hugmyndir að sjálfsögðu unnar í samvinnu við nemendur en ýmsir möguleikar s.s.
- Fá nemendur (og/eða hæfileikaríka foreldra) til að troða upp, spila á hljóðfæri, syngja, dansa, fara með gamanmál, galdrabrögð eða hvað annað sem þeim dettur í hug
- Pub - quiz - fá valda nemendur (ef til vill í samvinnu við umsjónarkennara) til þess að semja spurningar til dæmis að einhverju leiti úr námsefni vetrarins. Hver fjöldkylda skipar lið og svarar spurningunum á blað. Þegar búið er að bera upp allar spurningarnar skiptast liðin á blöðum, rétt svör eru lesin upp og merkt er við rétt svör. Að sjálfsögðu eru það svo sú fjölskylda sem fær flest stig sem að vinnur.
- Sýningarkvöld - Nemendur vinna margt mjög skemmtilegt í skólanum sem gaman er að deila með foreldrum, s.s. stuttmyndir, ýmsar kynningar.
- Ratleikur í og við Garðalund. Skipulag í höndum valdra foreldra og nemenda
- Bingó, spil, leikir