Póstsendingar úr Mentor - Leiðbeiningar

Foreldrar geta með auðveldum hætti sent póst sín á milli í gegnum Mentor. Einnig er auðvelt að senda kennurum og skólastjórnendum póst.  Farið á síðuna  mentor.is og skráið ykkur inn með kennitölu og lykilorði.  Ef þið hafið ekki lykilorð skal hafa samband við skrifstofu skólans, sími: 590 2500, netfang: gardaskoli@gardaskoli.is.

Senda póst til foreldra

  1. Smellið á hlekkinn Bekkjarlisti á valstikunni til vinstri. 
  2. Hægt er að velja alla foreldra með því að haka við Nafn efst á listanum eða velja stök nöfn.  Þegar búið er að haka við alla sem eiga að fá póstinn er smellt á Senda póst til foreldra efst til hægri. 
  3. Skráið fyrirsögn, texta og smellið svo á Senda

Senda póst til umsjónarkennara

  1. Smellið á hlekkinn Bekkjarlisti á valstikunni til vinstri.
  2. Smellið á Senda póst til umsjónarkennara fyrir neðan nafnalistann
  3. Skráið fyrirsögn, texta og smellið svo á Senda

Einnig er hægt að senda tölvupóst til umsjónarkennara í gegnum hlekkinn Starfsmenn. Sjá hér að neðan.

Senda póst til kennara eða skólastjórnenda

  1. Smellið á hlekkinn Starfsmenn í valstikunni til vinstri
  2. Smellið á umslagið við nafn viðkomandi starfsmanns
  3. Skráið fyrirsögn, texta og smellið svo á Senda

Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi