Foreldrarölt skólaárið 2010 - 2011
Markmið
Um er að ræða sjálfboðaliðastarf foreldra þar sem leitast er við að ná fram samstöðu þeirra á meðal um að virða reglur um útivistartíma barna og koma í veg fyrir hópamyndun unglinga eftir að lögbundnum útivistartíma er lokið.
Framkvæmd foreldraröltsins
Bekkjarfulltrúar hvers bekkjar eru ábyrgir fyrir því að foreldrar mæti í foreldrarölt fyrir sinn bekk. Bekkjarfulltrúar sendi tölvupóst á alla foreldra í viðkomandi bekk og óska eftir að foreldrar bjóði sig fram í foreldrarölt það kvöld sem bekkurinn hefur fengið úthlutað. Athugið að það er einfalt að senda tölvupóst á foreldra í gegnum Mentor-kerfið. Sjá leiðbeiningar hér.
Þeir sem rölta skulu aldrei vera færri en fimm. Þeir mæti í félagsmiðstöðina Garðalund kl. 22.00 ef um er að ræða föstudagskvöld en fyrir framan skólann ef um er að ræða laugardagskvöld (ath. lokað í Garðalundi á laugardagskvöldum.) Á föstudagskvöldum er haft samband við starfsmenn Garðalundar sem upplýsa og leiðbeina foreldrum. Farið er um Garðabæ fótgangandi eða akandi og litið eftir hvort ekki sé allt með felldu. Sjá meðfylgjandi upplýsingabækling. Engin hópamyndun barna eða unglinga eftir lögboðinn útivistartíma á að eiga sér stað.
Miða skal við að rölt verði starfrækt á föstudags- og laugardagskvöldum frá kl. 22.00 til miðnættis. Tímasetningin tekur mið af útivistartíma 13-16 ára unglinga, en þeir mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22.00 frá 1. september til 1. maí og eftir kl 24.00 frá 1. maí – 1. september. (undantekning ef þeir eru að koma af viðurkenndri skóla-, íþrótta – eða æskulýðssamkomu. )
Sófus, eigandi Ísbúðarinnar í Garðabæ, var svo elskulegur að bjóða þeim foreldrum sem eru á röltinu að koma við í Ísbúðinni og þiggja þar kaffi eða kakó. Takk fyrir Sófus :o)
Búið er að skipta bekkjunum niður á föstudags- og laugardagskvöld
| 22.10.2010 | Föstudagur | 10.AR | 8. ÁJ |
| 23.10.2010 | Laugardagur | 10. GS | 9. GE |
| 5.11.2010 | Föstudagur | 10. HT | 8.MB |
| 6.11.2010 | Laugardagur | 10. EE | 9. BB |
| 12.11.2010 | Föstudagur | 9. HÓ | 8. KFS |
| 13.11.2010 | Laugardagur | 10. HV | 9. KSS |
| 19.11.2010 | Föstudagur | 8. MT | 10. SG |
| 20.11.2010 | Laugardagur | 8. ÞJ | 9. RE |
| 26.11.2010 | Föstudagur | 9. SSH | Sjálandsskóli |