Pistill skólastjóra
Garðaskóli – pistill skólastjóra – vorönn 2010
Garðabæ 3. mars 2010
Sælir foreldrar góðir!
Á tímum sparnaðar og hagræðingar í rekstri grunnskóla í Garðabæ var í haust tekin ákvörðun um að gefa ekki út prentað fréttabréf skólans nema í upphafi skólaárs en færa upplýsingastreymi sem mest inn í rafræna heiminn, á heimasíðu, í tölvupóst milli heimila og skóla og síðan með birtingu pistla skólastjóra.
Almennt
Óhætt er að fullyrða að skólastarfið í vetur hafi verið farsælt. Við tókum í haust sl. á móti 135 eftirvæntingarfullum 8. bekkingum sem dreifðust í 6 bekkjardeildir af hóflegri stærð. Nokkrir fjörmiklir einstaklingar nýttu sér til að byrja með frelsið sem sjálfstjórnarkerfið veitir umfram þau mörk sem við setjum okkur í skólanum en þeir hafa nú langflestir róast og samsama sig nú að jafnaði hófstilltum og lífsreyndari eldri bekkingum.
Áhugi nemenda og skólasókn hefur verið með ágætum þrátt lyrir áhyggjur af yfirvofandi flensufaraldri. Um 60-80 nemendur 10. bekkjar stunda nám í framhaldsáföngum 103 og 203 í sex námsgreinum og það má hiklaust fullyrða að ferðakerfið og framhaldskólaáfangarnir auk agakerfisins sem kennt er við „Uppbyggingu“ (Uppeldi til ábyrgðar) móta þann jákvæða skólaanda sem ríkir í Garðaskóla þar sem nemendur gera sér grein fyrir að meginverkefni skólastarfsins er námið og það þykir mikilvægt að hver og einn nái sínu besta í glímu við lexíurnar og krefjandi viðfangsefni námsefnis.
Samstarfið við Garðalund og þróttmikið félagsstarfið er síðan rósin í hnappagat skólastarfsins. Nemendur geta unað í skólanum frá því snemma morguns fram á kvöld við nám og starf og sinnt áhugamálum sínum í góðum félagsskap. Í þessu felst mikið forvarnargildi.
Einelti – viðamikil könnun í Garðaskóla
Í byrjun vorannar var gerð viðamikil könnun á einelti í Garðaskóla og útbreiðslu þess með þátttöku allra nemenda skólans. Stefna skólans gagnvart einelti er einföld: Við líðum ekki einelti en viðurkennum að það kemur upp í mannlegum samskiptum og einnig hér í Garðaskóla. Við bregðumst skipulega við og fylgjum áætlun um viðbrögð gegn einelti („Garðabær gegn einelti“) hvort sem það er nýtt af nálinni eða þegar gömul eineltismál vakna til lífs. Námsráðgjafar skólans ásamt deildarstjórum og umsjónarkennurum hafa mest unnið að eineltismálum og góðu fréttirnar eru að fyrr er gripið inn í þau mál sem koma upp en áður sem eykur líkur á að eineltismál leysist betur og fyrr með minna tjóni en ella. Þá er það kunn staðreynd að einelti fer minnkandi eftir að börn komast á unglingsár gagnstætt því sem lengi vel var talið.
Foreldrum verður innan tíðar gerð grein fyrir niðurstöðum könnunar okkar um einelti í Garðaskóla og hvernig unnið verður úr könnuninni til þess að sporna við og helst útrýma þessum vágesti í mannlegum samskiptum.
Í könnun vorið 2009 um líðan nemenda í íslenskum grunnskólum kom í ljós að líðan unglinga (8.-10. bekk) í skólum Garðabæjar virðist bærileg og ekki veigamikill munur á kynjum í þeirri mælingu. Ný könnun um líðan ungmenna og hagi þeirra verður lögð fyrir nú í byrjun mars. Þá könnun annast fyrirtækið „Rannsóknir og greining“. Svæðisráð foreldra mun halda kynningarfund um líðan nemenda í grunnskólum Garðabæjar í Hofsstaðaskóla, fimmtudaginn 18. mars kl. 19.30.
Samræmd próf – úrvinnsla Nemendur 10. bekkjar þreyttu samræmd próf í þremur námsgreinum í september en sá háttur var nú hafður á í fyrsta sinn í stað samræmdra prófa í sex námsgreinum sem haldin hafa verið á vorin.
Fagstjórar í greinunum þremur: íslensku, ensku og stærðfræði, hafa í samráði við nemendur, unnið úr niðurstöðum samræmdra prófa haustsins en með þeim hafa bæði komið fram upplýsingar um styrkleika hvers nemanda og veikleika auk upplýsinga um stöðu skólans í tilteknum námsþáttum þessara þriggja námsgreina.
Niðurstöður – árangur
Námsmatsstofnun birtir ekki árangur einstakra skóla, en eingöngu meðaleinkunnir landshluta, sveitarfélaga og landsins alls. Svo vill til að í haust voru það eingöngu nemendur Garðskóla sem þreyttu samræmd próf í Garðabæ og til gamans eru niðurstöður skólans í samanburði við landið og önnur sveitarfélög birt hér sem viðhengi (og finnast einnig á heimasíðu skólans). Af þeim tölum má sjá að árangur nemenda skólans er að jafnaði góður og í fullu samræmi við einkar góðan árangur 10. bekkinga Garðaskóla á samræmdum prófum á undanförnum árum. Þó ber eins og ætíð að vara við einhlítum samburði af þessu tagi því ýmsir breytuþættir leynast á milli skóla og héraða. Til dæmis taka ekki allir nemendur í 10. bekkjum landsins prófin og þátttakan er mismunandi eftir skólum og námsgreinum. Þá var framkvæmd prófanna að þessu sinni að fullu á ábyrgð skólanna án þess eftirlits sem menntamálaráðuneytið hafði með prófunum eins og þau voru áður framkvæmd.
Innritun í framhaldsskóla
Ljóst er að miklar breytingar eiga sér nú stað varðandi innritun nemenda í framhaldsskóla og nú snemma á vorönn sækja nemendur eingöngu um tvo skóla (aðal- og varaval) í stað fjögurra áður. Nánari upplýsingar hafa verið sendar nemendum og foreldrum í 10. bekk en hér er hægt að staðfesta að þeir nemendur úr Garðaskóla sem sækja um FG í fyrsta sæti njóta þar forgangs og eiga víst sæti í þeim skóla. Eftir að einkunnir liggja fyrir í vor gefst nemendum kostur á að breyta umsókn sinni um framhaldsskóla samkvæmt þeim reglum sem menntamálaráðuneytið setur. Greinilegt er að vilji ráðuneytis er að sem flestir nemendur sæki skóla í heimahéraði en hér verður enginn dómur lagður á þá stefnu. Hins vegar er þekkt að allmargir nemendur úr Garðaskóla stefna á nám í skólum í Reykjavík s.s. VÍ, MR, MH og Kvennaskólann. Þeir skólar hafa á undanförnum árið gjarnan valið inn nemendur með hæstu einkunnir úr grunnskóla.
Bekkjarkvöld í 10.bekk
Á heimasíðu skólans er sagt frá einkar skemmtilegri og fjölsóttri kynningu á framhaldsskólum sem fram fór í Garðaskóla síðla í febrúar. Allt að 300 manns heimsóttu skólann og þröng var á þingi þar sem flestir framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu kynntu starf sitt í kynningarbásum og veittu upplýsingar í máli og myndum. Foreldrar sáu um veitingar og nemendur um skemmtiatriði. Garðaskóli bauð að venju nemendum og foreldrum nemenda í Álftanesskóla að nýta sér kynninguna.
Skólastefna Garðabæjar
Um þessar mundir er verið að móta skólastefnu Garðabæjar fyrir árin 2010-2013 og hafa allir aðilar skólastarfsins komið að því, hópar nemenda, starfsmanna og foreldra. Á skólaþingi Garðabæjar í febrúar sl. voru niðurstöður vinnuhópa kynntar og verða drög að skólastefnu bæjarins kynnt bæjarbúum innan tíðar.
Foreldrasamstarf
Snemma á þessu skólaári var Foreldrafélag Garðaskóla endurreist með myndun stjórnar og á aðalfundi félagsins kosin stjórn og einnig tveir fulltrúar foreldra sem sitja í Skólaráði Garðaskóla. Allar upplýsingar um Foreldrafélagið og Skólaráðið (reglur og fundargerðir) er að finna á heimasíðu skólans : gardaskoli.is.
Kynningarfundur Foreldrafélagsins
Eins og áður hefur komið fram þá mun svæðisráð foreldra halda kynningarfund um líðan nemenda í grunnskólum Garðabæjar í Hofsstaðaskóla, fimmtudaginn 18. mars kl. 19.30.
Heimavinna – eilífðarumræða
Mikil umræða hefur átt sér stað á meðal kennara og foreldra í Garðaskóla um heimavinnu, tilgang hennar og framkvæmd. Einnig hafa kennarar rætt notkun svonefndrar „Handbókar nemenda“ og framtíð hennar. Niðurstaða umræðunnar er m.a. sú að kennarar munu í auknum mæli nota forritið „Mentor“ til að skrá niður verkefni og heimavinnu, en engu að síður mun ætlast til að nemendur eigi handbók eða „kompu“ til að skrá niður heimavinnu og verkefni á eigin vegum.
Umræðan um heimanámið á sér stað í öllum nútímasamfélögum. Skólastjóri hefur áður í pistli sínum til foreldra reifað tilgang og gildi heimanáms og ljóst er að hinn gullni meðalvegur í magni heimanáms er vandfundinn og skiptar skoðanir um málið, bæði í kennara- og foreldrahópnum. Skólastjóri telur þó augljóst að magn heimanáms verði að miðast við þann tíma sem nemandinn hefur utan skólatíma og með lengingu skólaársins og fjölgun vikulegra kennslustunda hefur verulega gengið á þann tíma sem nemandinn er ekki í skólanum. Hér í Garðaskóla hefur skólastjóri lagt áherslu á að heimanám sé hóflegt og þjóni fernum tilgangi: -Að nemandinn fái verkefni sem ætlað er að festa námsatriði í minni (upprifjun). – Að nemandinn fái verkefni sem undirbúa önnur sem lögð verða fyrir í kennslustund. – Að nemandanum sé ætlað að ljúka verkefni sem honum tókst ekki í kennslustund. – Að nemandinn fari með verkefni heim til sín til að sýna foreldrum og veita þeim þannig tækifæri til að taka þátt í námi barna sinna. Síðan er eðlilegt að skóli og heimili hafi jákvæð samskipti um heimanám og foreldrar ráðgist við kennara um umfangið – hvort heldur sem þeim finnst það of mikið eða lítið!
Í þessu samhengi verður síðan að minna á að mjög margir nemendur Garðaskóla í 9. og 10. bekk nýta þær lausu stundir sem eru í stundatöflum (eyður/göt) til að ljúka heimanámi á skólatíma. Skólinn hvetur nemendur til þess að nýta þann tíma á þann hátt og þá getur það vel komið fyrir að nemendur hafi lokið öllum verkefnum þegar heim er komið. Opið hús fyrir nýnema og foreldra þeirra
Miðvikudaginn 17.mars nk. mun skólinn verða opinn fyrir heimsóknir nýnema sem innritast í Garðaskóla þetta vorið. Nemendum og foreldrum er boðið að heimsækja skólann á skólatíma og kynna sér skólastarfið. Á móti þeim taka starfsmenn skólans og námsráðgjafar og nemendaráðgjafar (nemendur). Þá mun einnig sama dag kl. 17.30 verða haldinn kynningarfundur fyrir þá foreldra og nemendur sem ekki komust fyrr um daginn og þá sem vilja vita meira um skólann.
Síðar eftir að innritun lýkur mun þeim nemendum sem skrá sig í Garðaskóla boðið að heimsækja skólann í fylgd bekkjarfélaga sinna úr viðkomandi skóla.
Valgreinar
Nú á næstu dögum velja nemendur í 8. og 9. bekk námsgreinar fyrir næsta vetur og hefur námsgreinalýsingum og valblöðum verið dreift til nemenda. Skilum á vali skal lokið fyrir 5. mars nk.
„Gagn og gaman“ á næsta ári
Mörgum þótti leitt að hefðbundnir „Gagn og gaman-dagar“ skyldu falla niður í haust, m.a. vegna sparnaðar. Hér er þó hægt að flytja þær góðu fréttir að Garðabær hefur gefið grunnskólunum kost á að sækja um fjármuni sem nýtast til sveigjanlegs skólastarfs og Garðaskóli og Garðalundur hafa sótt um fé til að standa straum að „Gagni og gamni“ á næsta hausti.
Söngleikur og árshátíð
Árshátíð nemenda skólans verður haldin með pompi og prakt þriðjudagskvöldið 13. apríl og myndarlegur hópur nemenda hefur hafið æfingar á fjörlegum söngleik sem settur verður upp í skólanum á vordögum. Verður þetta sjöundi söngleikurinn í röð sem settur er upp í Garðaskóla/Garðalundi. Að þessu sinni er það Þórunn Erna Clausen sem leikstýrir hópnum en hún hefur í flest skiptin annast það veigamikla hlutverk.
Skíðaferðir
Garðalundur býður að venju upp á skíðaferðir skíðaklúbbs félagsmiðstöðvarinnar og um 60 nemendur 8. bekkjar gistu í tvær nætur í Bláfjöllum 1.-3. mars. Heppnin var með krökkunum því lyfturnar opnuðu einmitt mánudaginn 1. mars eftir töluverða snjókomu á Reykjavíkursvæðinu. Fjöldi 9. og 10. bekkinga heldur síðan til Akureyrar í skíða- og skemmtiferð 10.-14. mars. Fullri kennslu, skv. stundaskrá, er haldið uppi fyrir þá nemendur sem ekki fara í ferðina.
Listadagar í lok apríl
Listadagar barna og ungmenna 2010 verða haldnir í Garðabæ vikuna 26. apríl til 1. maí. Garðaskóli tekur að sjálfsögðu þátt í þessum menningarviðburði og dagana 26. og 27.apríl (mánudagur og þriðjudagur) er fyrirhugað að setja upp svonefndar „stöðvar“ í skólanum þar sem nemendur geta farið á milli hópa og tekið þátt í verkefnum og sköpun ýmiss konar. Þema listadaganna að þessu sinni er „Leikur og gaman – að leika sér.“ Miðvikudaginn 28. apríl er hugmyndin að hafa „opið hús“ þar sem nemendur og foreldrar geta kynnt sér afrakstur listadaganna í Garðaskóla.
Garðaskóli mun kynna nemendum og foreldrum nánara fyrirkomulag þessara daga þegar nær dregur.
Fjölbreytt viðfangsefni í öllum námsgreinum
Hér í stuttum pistli verður ekki tíundað allt það fjölbreytta starf sem fram fer innan hinna mörgu námsgreina og valgreina sem skólinn býður upp á. Hér skal þó til gamans stiklað á stóru:
Í samfélagsfræði í 9.bekk hafa nemendur unnið umgangsmikil verkefni um heimsálfurnar Afríku og Ameríku. Nemendur í 8. bekk vinna í mars að verkefni um hafið og síðan þemaverkefni um orkumál. í textílmennt og fatahönnun eru nemendur að sauma árshátíðarfatnað sinn. Þeir fóru á sýningu Steinunnar Sigurðardóttur á Kjarvalsstöðum í janúar og í vor ljúka nemendur í fata- og textílhönnun í fyrsta sinn þriggja eininga framhaldsnámi í áfanganum THL103. Í málmsmíði hafa nemendur lært rafsuðu og soðin hafa verið saman reiðhjól af öllum stærðum og gerðum. Nemendur fengu val um að þreyta áhugasviðskönnun hjá námsráðgjöfum skólans fyrir skömmu og í mars/apríl munu nemendur Garðaskóla heimsækja FG og hverjum nemanda er síðan boðið upp á einstaklingsviðtöl um val á framhaldsskóla í apríl/maí.
Í náttúrufræði er reynt að framkvæma verklegar æfingar sem kostur leyfir en einnig var nokkuð um vettvangsferðir (í lækinn, fjöruna og hraunið sl. haust). Þá hafa hópar heimsótt náttúrugripasafnið í Kópavogi.
Í íslensku, stærðfræði og tungumálunum eru síðan viðamiklar námsáætlanir, ritgerðir, sögurýni og bókmenntakynningar. Til gamans má geta að hjá okkur hefur á undanförnum dvalið og starfað röskur sendikennari í dönsku: Vivian Edelberg frá Óðinsvéum á Fjóni.
Skipulag síðustu vordaga
Þótt enn séu þrír mánuðir fram að skólalokum má minnast á að hefðbundin vorpróf verða 25.-31. maí en að þeim loknum verða fimm skóladagar með óhefðbundnu sniði. Vorhátíð verður 8. júní og skólaslit 10. júní. Dagskrá daganna fimm eftir vorprófin verður mismunandi eftir árgöngum: Starfskynning, þemadagar, skyndihjálparnámskeið og vorferð í 10. bekk, þemadagar í 9. bekk og gróðursetning og útivistardagar í 8.bekk.
Lokaorð
Ljóst er að ör nemendafækkun undanfarinna ára hefur sett mark sitt á Garðaskóla. Á næsta ári er áætlað að nemendum fækki um 54 og verða þá alls í skólanum 384 nemendur í stað 438 þetta skólaárið. Ræður þar mestu að í vor útskrifast fjölmennur árgangur og í 8. bekk innritast færri m.a. vegna þess að hluti árgangsins sækir Sjálandsskóla. Fækkunin hefur enn ekki mikil áhrif á ferða- og hraðakerfi 9. og 10. bekkjar en ljóst er að á þarnæsta ári gætu orðið skipulagsbreytingar sem tengjast fækkun nemenda í næstkomandi 9. og 10. bekk. Garðaskóli mun að sjálfsögðu vinna á faglegan hátt úr þeirri stöðu og mikill metnaður til að halda uppi þróttmiklu og farsælu skólastarfi þar sem ríkir jákvæður og starfsamur skólaandi - jafnt meðal nemenda, starfsmanna og foreldra.
Með samstarfskveðju
Ragnar Gíslason, skólastjóri Garðaskóla