Persónuleg ráðgjöf
Persónuleg ráðgjöf felst í að veita nemendum og forráðamönnum ýmiss konar aðstoð og stuðning svo að nemendur nái settu marki í námi sínu og skólaganga þeirra nýtist sem best.
Persónuleg mál nemenda geta verið af ýmsum toga s.s. námsleg, félagsleg, tilfinningaleg eða tengd samskiptum. Aðstoð námsráðgjafa miðar að því að hjálpa nemendum að leita lausna.
Námsráðgjafi er bundinn þagnarskyldu um einkamál nemenda.